
Um Hrönn
Hrönn Haraldsdóttir málar með olíulitum. Byrjunin var árið 1974 hjá Námsflokkum Reykjavíkur í Miðbæjarskóla og síðan á ýmsum námskeiðum, en mest, mörg undanfarin ár, hjá Jean Antoine Posocco, fyrst á Vesturgötu 7 og síðan á Vitatorgi. Hún málar einnig heima.
Efnistökin eru af ýmsum toga, ýmist eftir fyrirmyndum eða fríhendis. Steinar, mosi, fuglar og náttúran eru í uppáhaldi.
Textíll, prjón og hekl skipa stóran sess hjá henni og eru námskeiðin mörg sem hún hefur sótt í þeim efnum.
Í málverkunum hefur hún notað ýmis hjálparefni, eins og sandblöndu, gyllingu, silfuráferð og fleira.